Flugveiki

Flugveiki getur leitt til þess að fólki verður óglatt og kastar upp. Þau sem eru sérstaklega viðkvæm fyrir flugveiki geta tekið lyf í forvarnarskyni, en ókosturinn er sá að lyfin hafa aukaverkanir á borð við syfju og sljóleika. Einfaldara er að hafa Reliefband við höndina, en það er klínískt prófað og viðurkennt til að takast á við ógleði og uppköst af völdum flugveiki og annarar ferðaveiki. 

Reliefband hefur engin lyfjaáhrif, virkar strax, hefur engin eftirköst og er hættulaust með öllu. Börn geta notað Reliefband en þurfa að hafa nægilegan þroska til að geta sagt til um verkun tækisins og styrkstillingu þess. Nóg er að setja Reliefband af stað nokkru áður en aðstæður skapast sem geta valdið ógleði, eða um leið og viðkomandi finnur fyrir óþægindum.

Reliefband vinnur á skjótvirkan hátt. Tækið er á stærð við úr og er fest með armbandi á höndina og leiðir milda rafskautaörvun til miðtaugar undir úlnlið. Örvunin frá Reliefband berst um miðtaugina til þess hluta heilans sem veldur ógleðitilfinningu. Reliefband byggir á einkaleyfisverndaðri tækni, er viðurkennt af FDA (bandarísku lyfjastofnuninni) og skráð hjá Lyfjastofnun Íslands.

Scroll to Top